Pottréttir og brauð

Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á hollri, einfaldri og heimilislegri matargerð. 

Námskeiðið verður sett upp þannig að gerðir verða pottréttir í 5 skipti og brauð í 5 skipti.

Kennt verður á mánudögum klukkan 14:00 - 16:00

Námskeiðið hefst 30. janúar og lýkur 3. apríl. Alls 10 skipti.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Matvælaskólinn hjá Sýni
Verð: 25.000
Tími: 10 vikur