Spænska hjá Mími - nýtt námskeið

Í apríl verður boðið upp á námskeið í spænsku hjá Mími símenntun. Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir. 

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á málnotkun, orðaforða, talmál og ritun. 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukna tilfinningu fyrir spænsku og auki við orðaforða sinn, geti skilið  texta og fyrirmæli og fái þjálfun í að geta tjáð sig á spænsku og náð betri tökum á framburði.

Viðfangsefni verður aðlagað eftir óskum og áhuga þátttakenda hverju sinni.


Námskeiðið hefst 23.apríl og lýkur 30.maí. 3 kennslustundir í senn í 6 vikur.

Kennt er tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 16:45-18:50

 

Hægt er að sækja um Hér