Sumarnámskeið
Ég dansa til að gleyma
Á námskeiðinu ætlum við að dansa til að gleyma óþarfa áhyggjum sem fylgja lífinu. Við ætlum að sletta úr klaufunum og hafa gaman.
Fjaran fyrir öll
Við bjóðum öll velkomin í fjöruna!
Finndu ferska fjöruloftið, mjúka sandinn, hljóðið í öldunum, ilminn af þanginu, hljóðið í fuglunum, áferð skeljanna...
Frjálsar íþróttir
Á þessu námskeiði verður farið yfir kast, stökk og hlaupagreinar undir leiðsögn hjá reyndum frjálsíþróttakennara. Frjálsar íþróttir reyna á allan líkamann og það geta allir reynt á sig við hæfi.
Langar þig að prófa sjósund?
Sjósund er orðið mjög vinsælt á Íslandi.
Í Nauthólsvík eru búningsklefar og góð aðstaða til að dýfa sér í sjóinn og fara í heitann pott eða gufu á eftir.
Í Nauthólsvík eru sérstakir hjólastólar á stórum uppblásnum dekkjum fyrir þau sem þurfa til að komast yfir sandinn og út í sjó.
Léttir og ljúfir sumarréttir
Á námskeiðinu verða útbúnir léttir og ljúfir sumarréttir með áherslu á litríkan mat, fallega borðskreytingu og notalega stemmingu.
Mini-golf
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu reglur og tækni í minigolfi undir handleiðslu kennara. Minigolf er gleðiíþrótt sem reynir á fínhreyfingar og jafnvægi. Spilað verða 18 holur sem kallast fjarsjóðsleitin. Allar brautirnar hafa sjóræningjaþema.
Náttúrubingó
Á námskeiðinu verður gengið um Laugardalinn þar sem leitað verður að ýmsum hlutum í náttúrunni og rætt saman um það sem fyrir augum ber á leiðinni.
Prjónagraff
Prjónagraff er prjónað eða heklað handverk sem ætlað er utan um hluti sem standa utandyra, oftast á fjölförnum stöðum eða við gangstíga. Handverkið verður listaverk sem fær að standa úti fyrir vegfarendur að njóta og er tilgangur verksins að fegra umhverfið.
Skáti í einn dag
Langar þig að prófa að vera skáti í einn dag og upplifa eitthvað af því sem skátalífið hefur upp á að bjóða? Á námskeiðinu kynnast þátttakendur skátahreyfingunni og fá tækifæri til að spreyta sig á ýmsum verkefnum sem tengjast útivist og þrautum.
Sumarjóga
Í sumarjóga förum við í mjúkar jógaæfingar, gerum öndunaræfingar, fáum góða slökun og hugleiðum.
Sumarlegir blómapottar og falleg sumarblóm
Á þessu námskeiði málum við og skreytum blómapotta og setjum í þá falleg sumarblóm. Tilvalið fyrir garðinn, pallinn, svalirnar eða sem gjöf.
Sungið undir bláhimni
Á námskeiðinu verður gítarinn dreginn fram og sungin skemmtileg lög undir berum himni. Þetta er námskeið fyrir þá sem vilja rifja upp lögin fyrir útileguna, ættarmótið, þjóðhátíðina eða bara komast í gott sumarskap.
Ukulele
Vissir þú að litlu sætu gítararnir heita Ukulele og urðu þekktir á Hawaii á 19.öld?
Boðið verður uppá kennslu í Ukulele, hægt verður að læra lög með einum, tveimur eða þremur hljómum. Næg hljóðfæri verða á staðnum fyrir þá sem ekki eiga Ukulele en þeir sem eiga koma með sitt hljóðfæri.
Út og inn með snjalltækið
Langar þig að læra að sýna og segja öðrum frá því á samfélagsmiðlum sem þú upplifir í sumar? Á námskeiðinu fara þátttakendur fyrst út að safna myndefni í snjalltæki og síðan inn að vinna skapandi efni í formi mynda eða stuttra myndskeiða sem hægt er að birta á samfélagsmiðlum svo sem Instagram, Facebook eða Youtube.
Vatnslitir - sumarið
Á þessu námskeiði fylgjumst við með því hvernig umhverfið breytist og sumarið tekur á sig mynd. Við málum vatnslitamyndir af laufguðum trjágreinum og plöntum og erum vakandi fyrir breytingum náttúrunnar.
Viltu læra að spila Kubb
Viltu spila vinsæla útispilið Kubb? Leikið er í tveimur liðum sem keppast að fella kubba og loks kónginn með kastkeflum. Frábær skemmtun utandyra.
Vor- og náttúruupplifun í Grasagarðinum
Að upplifa vorið, veðrið og náttúruna í gróðri og jarðvegi. Á leið um Grasagarðinn skoðum við og fræðumst um það sem fyrir augu ber. Til dæmis steinahæðina, ýmsan gróður, trjáplöntur og blóm.
Þurrkaður blómvöndur
Nú eru þurrkuð blóm komin aftur í tísku. Á þessu námskeiði lærum við að útbúa fallegan blómvönd úr þurrkuðum blómum.