Lokað eftir hádegi í dag 7.júní vegna starfsdags

Fjölmennt verður lokað eftir hádegi í 7.júní vegna starfsdags. Opnum aftur á morgun kl 8.
Lesa meira

Opið fyrir umsóknir á námskeið haustannar

Í haust verða um 100 námskeiðstitlar í boði í 11 námskeiðsflokkum þannig að allir ættu að geta fundið sér námskeið við hæfi. Eins og alltaf eru einhverjar nýjungar í boði og nú á haustönn verða 9 ný námskeið sem bætast í hópinn. Einnig verður í haust námsbrautin Líf og heilsa sem haldin er í samstarfi við Framvegis.
Lesa meira

Námskeið haustannar

Námskeiðin sem verða í boði á haustönn verða komin á heimasíðuna 20. maí næstkomandi. Umsóknarfrestur er til 16. júní.
Lesa meira

Árshátíð Fjölmenntar 20.maí í Gullhömrum

Árshátíð Fjölmenntar verður haldin 20.maí í Gullhömrum. Skráning fer fram hér. Miðasala hefst 2.maí og lýkur 18.maí. Húsið opnar með fordrykk klukkan 17:30.
Lesa meira

Vortónleikar Fjölmenntar

Vortónleikar Fjölmenntar verða haldnir í Fella og Hólakirkju föstudaginn 6. maí kl. 18:00-20:00 (6-8).
Lesa meira

Silver Age learning - Fréttabréf 4

Fjölmennt tekur nú þátt í einu Erasmus+ verkefni eins og fyrr hefur verið kynnt; Silver age learning.
Lesa meira

Sumarnámskeið 2022

Gleðilegt sumar. Nú er komið að því að hægt er að sækja um sumarnámskeið sem haldin verða á tímabilinu 18. maí - 30.maí. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.
Lesa meira

Horft fram á veginn

Þann 30. mars hélt Fjölmennt, símenntunar- og þekkingarmiðstöð ráðstefnuna Nám er fyrir okkur öll. Um 200 manns sóttu ráðstefnuna sem var bæði kraftmikil og árangursrík. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, flutti ávarp í upphafi ráðstefnu. Það var ánægjulegt og uppörvandi að hlusta á ráðherra segja að fram undan sé endurskoðun laga um framhaldsfræðslu þar sem unnið verði að fjölbreyttu og aðgengilegu námi fyrir alla, alla ævi.
Lesa meira

Nám er fyrir okkur öll - Ráðstefna Fjölmenntar 30. mars

Þann 30. mars verður ráðstefna á vegum Fjölmenntar um menntunartækifæri fatlaðs fólks. Á ráðstefnunni fáum við að heyra óskir fatlaðs fólks bæði í gegnum fyrirlestra og hópavinnu þar sem öllum gefst kostur á að koma skoðun sinni á framfæri.
Lesa meira

Til þátttakenda á námskeiðum Fjölmenntar

Í þau tvö ár sem Covid faraldurinn hefur staðið yfir höfum við að mestu getað haldið úti eðlilegri starfsemi ef frá er talið tímabil í byrjun faraldurs. En nú hefur orðið breyting á og þessa dagana herjar Covid veiran hressilega á starfsfólk Fjölmenntar og fjölskyldur þeirra.
Lesa meira