Bollakökur - Gómsæt litagleði
![](/static/signup/course/md/1655214383-1650449696-mynd-fyrir-bollakokur.jpg)
Á þessu námskeiði læra nemendur að baka nokkrar gerðir af bollakökum. Þær geta verið alls konar, bæði litlar og stórar. Bollakökur geta verið sætar á bragðið og fallega skreyttar með litríku smjörkremi sem gaman er að bjóða upp á. Þær má líka gera í hollari kantinum sem tilvalið er að grípa með í vinnuna eða gönguferðina. Fer alltaf eftir áhuga og smekk hvers og eins.
Kennt verður á haustönn 2022
5 skipti - 1 sinni í viku - 3 kennslustundir í senn
Tími: Auglýst síðar
Tímabil: Auglýst síðar
Kennari: Hjördís Edda Broddadóttir.