iPad-fræðsla
Á þessari síðu finnurðu fræðsluefni varðandi iPad.
Hér fyrir neðan eru erindi sem haldin hafa verið á vegum Fjölmenntar um notkun spjaldtölvu.
Undir flipunum hér til hægri eru kennslumyndbönd og/eða leiðbeiningar sem hægt er að prenta út um smáforrit og annað sem kennarar Fjölmenntar hafa góða reynslu af í spjaldtölvuvinnu með þátttakendum á námskeiðum. Ath. að listinn er ekki tæmandi – nýtt efni mun sífellt bætast við.
Glærur frá umræðufundinum „Að nota spjaldtölvuna í daglegu lífi – tilgangur, hlutverk og samstarf“ sem haldinn var í Fjölmennt 30. september 2019.
Glærur frá fræðsluerindinu „Spjaldtölvan sem tæki til að: styrkja valdeflingu, auka notendasamráð og efla sjálfstæði“ sem unnið var í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ fyrir styrk frá Velferðarráðuneyti vorið 2016: