Enska 1 hjá Mími

Í febrúar verður boðið upp á námskeið í ensku hjá Mími símenntun. Námskeiðið er fyrir byrjendur.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á málnotkun, orðaforða, talmál og ritun. 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukna tilfinningu fyrir ensku og auki við orðaforða sinn, geti skilið  texta og fyrirmæli og fái þjálfun í að geta tjáð sig og náð betri tökum á framburði.

Viðfangsefni verður aðlagað eftir óskum og áhuga þátttakenda hverju sinni.

Námskeiðið er í 2 kennslustundir í senn í 5 vikur.
Kennt er tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 13:00-15:00

Kennslutímabil 4.febrúar - 6.mars

Umsóknarfrestur er til 20.nóvember

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Athugið að enginn félagsliði er til aðstoðar í Mími og þau sem þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs þurfa að hafa aðstoðarmanneskju með sér. 

Staður: Mímir símenntun
Verð: 20.800 kr
Tími: 5 vikur