Enska 2 hjá Mími
Í febrúar verður boðið upp á námskeið í ensku hjá Mími símenntun. Námskeiðið er fyrir þau sem hafa grunn í ensku.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á málnotkun, orðaforða, talmál og ritun.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukna tilfinningu fyrir ensku og auki við orðaforða sinn, geti skilið texta og fyrirmæli og fái þjálfun í að geta tjáð sig og náð betri tökum á framburði.
Viðfangsefni verður aðlagað eftir óskum og áhuga þátttakenda hverju sinni.
Námskeiðið er í 2 kennslustundir í senn í 5 vikur.
Kennt er tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum klukkan 13.00-15:00
Kennslutímabil 3.febrúar - 5.mars
Umsóknarfrestur er til 20.nóvember
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.
Athugið að enginn félagsliði er til aðstoðar í Mími og þau sem þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs þurfa að hafa aðstoðarmanneskju með sér.