Sápugerð

Sápugerð er skapandi og fjölbreytt upplifun þar sem nemendur vinna með ólíka skynjun eins og liti, form, lykt og áferð. Á námskeiðinu læra þátttakendur að að blanda saman hráefnum og búa til sín eigin sápustykki. Sérstök áhersla er lögð á að nota fjölbreytta liti og ilmi til að skapa einstök verk sem höfða til allra skynfæranna.

Í lok námskeiðsins hafa nemendur búið til sín eigin sápustykki og fá einnig að hanna umbúðir, þar sem listrænir þættir eins og áferð og form koma við sögu. Námskeiðið endar á því að þátttakendur pakka sápustykkjunum sínum fallega inn, tilbúin til notkunar eða gjafa.

Litir og form: Nemendur prófa sig áfram með að lita sápur og hvernig skapa má ýmis konar mynstur. Nemendur velja sér form til að steypa sápur í. Þau sem vilja geta skorið sápurnar út.

Lykt og áferð: Nemendur skoða ilmkjarnaolíur og önnur lyktarefni sem hægt er að nota í sápur. Hráefni eins og hafrar, salt, sandur og þurrkaðar jurtir skapa spennandi áferð.

Umbúðir: Hægt er fara hinar ýmsu leiðir í að pakka sápum inn, frá einföldum borðum og plöstun til fallegra hannaðra pakkninga. Hver og einn nemandi býr til umbúðir eftir eigin höfði.

Markmiðið með námskeiðinu er að virkja og vinna með ólíka skynjun í sama hlutnum, pæla í því hvað fer vel saman og umfram allt gefa sköpunargleðinni lausan tauminn. 

Námskeiðið er kennt einu sinni í viku í 6 - 8 vikur.

Umsóknarfrestur er til 20.nóvember. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Fjölmennt
Verð: 12.900 - 22.200 kr. fer eftir lengd námskeiðs
Tími: 6 - 8 vikur
Nanna Eggertsdóttir
Snorri Rafn Hallsson