Spænska hjá Mími
Námskeiðið er ætlað byrjendum og þeim sem lengri eru komnir í spænsku.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á málnotkun, orðaforða, talmál og ritun.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukna tilfinningu fyrir spænsku og auki við orðaforða sinn, geti skilið texta og fyrirmæli og fái þjálfun í að geta tjáð sig á spænsku og náð betri tökum á framburði.
Viðfangsefni verður aðlagað eftir óskum og áhuga þátttakenda hverju sinni.
Námskeiðið er í 3 kennslustundir í senn í 10 vikur.
Kennt er tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:00-19:00
Umsóknarfrestur er til 16. júní.
Athugið að enginn félagsliði er til aðstoðar í Mími og þeir sem þurfa aðstoð athöfnum daglegs lífs þurfa að hafa aðstoðarmanneskju með sér. Að öðrum kosti getur viðkomandi ekki sótt þetta námskeið.