Teiknimyndir og tilfinningar

Á námskeiðinu skoðum við teiknimyndir, aðallega úr smiðju Disney og könnum tilfinningaskalann. Við búum til tæki og tól til að nýta teiknimyndir og teiknimyndapersónur til að skoða eigin tilfinningar og til að hjálpa okkur til að tjá okkur.

Námskeiðið er einu sinni í viku, 1 - 1,5 kennslustund í senn í 8 vikur.

Umsóknarfrestur er til 16. júní. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Fjölmennt
Verð:
Tími: 8 vikur