Þýska hjá Mími

Þetta er námskeið fyrir byrjendur og þá sem eru komnir aðeins lengra og hafa áhuga á að kynnast nýju tungumáli.
Farið verður í grunnatriði í þýsku. Lögð er áhersla á málnotkun eins og talmál, framburð, orðaforða og ritun.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukna tilfinningu fyrir þýsku. Þeir geti hlustað á og lesið einfalda texta og tjáð sig á einfaldan hátt um kunnugleg málefni.
Námskeiðið er í 2 kennslustundir í senn 2x í viku í 10 vikur; samtals 40 kennslustundir.
Kennt er tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum klukkan 17:10-19:20
Kennslutímabil:
Umsóknarfrestur er til 20.nóvember
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.
Athugið að enginn félagsliði er til aðstoðar í Mími og þau sem þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs þurfa því að hafa aðstoðarmanneskju með sér. Að öðrum kosti getur viðkomandi ekki sótt þetta námskeið.