Bleikur dagur í Fjölmennt

Bleikt starfsfólk Fjölmenntar
Bleikt starfsfólk Fjölmenntar

Bleikur dagur í Fjölmennt.
Föstudagurinn 14. október 2022 var Bleiki dagurinn allsráðandi hér í Fjölmennt.

Bleikir búningar prýddir með bleiku slaufunni, bleikt morgunkaffi með skærbleiku meðlæti og starfsfólk dressaði sig upp í bleikustu fötin sem fundust í fataskápunum þann morguninn.
Á Bleika deginum eru landsmenn hvattir til að sýna lit og klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu.