Fræðsluerindi um hlutverk aðstoðarfólks í námi fólks með þroskahömlun
23.09.2020
Haldið verður fræðsluerindi fyrir starfsfólk í búsetuþjónustu þátttakenda á námskeiðum hjá Fjölmennt
miðvikudaginn 30. september kl. 14:00-16:00.
Fjallað verður um hlutverk aðstoðarfólks í námi fólks með þroskahömlun og áhersla lögð á að kynna hagnýtar leiðir sem nýst geta aðstoðarfólki í daglegu starfi. Við hvetjum því sérstaklega starfsfólk sem fylgja þátttakendum á námskeið til að taka þátt en einnig stjórnendur í búsetuþjónustu þátttakenda. Fræðsluerindið verður haldið í húsnæði Fjölmenntar, Vínlandsleið 14, og áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á eftirfarandi skráningarform í síðasta lagi á mánudaginn nk.: