Fundur í Fjölmennt um námstilboð Fjölmenntar, samstarf og þróun
Fjölmennt býður forstöðumönnun og yfirþroskaþjálfum/deildastjórum/teymisstjórum til fundar um námstilboð Fjölmenntar, samstarf og þróun. Fundurinn verður mánudaginn 17. febrúar í húsnæði Fjölmenntar í Vínlandsleið 14. Hægt verður að velja um tvo fundartíma, klukkan 10:00-12:00 eða 14:00-16:00.
Vinsamlegast látið vita hvort þið komist á fundinn og hvorn fundartímann þið veljið. Sendið svar á radgjof@fjolmennt.is
Dagskrá fundar:
- Helga Gísladóttir forstöðumaður fer yfir starfsemi Fjölmenntar.
- Anna Soffía Óskarsdóttir og Jarþrúður Þórhallsdóttir ráðgjafar Fjölmenntar kynna ráðgjafarhlutverk Fjölmenntar.
- Hlutverk aðstoðarfólks í námi fólks með þroskahömlun sem þarf mikinn stuðning: Kynning á niðurstöðum rannsóknar og umræður um fyrirhugaða fræðslu fyrir starfsfólk í búsetuþjónustunni:
Helle Kristensen, kennari og verkefnastjóri hjá Fjölmennt, kynnir niðurstöður rannsóknar sinnar sem unnin var sem lokaverkefni til M.Ed.-prófs í sérkennslufræði og skóla margbreytileikans við Menntavísindasvið HÍ árin 2018 og 2019. Niðurstöður rannsóknarinnar geta nýst stjórnendum í búsetuþjónustu við að auka lífsgæði notenda með því að auka þátttöku þeirra í námi og vinna markvissara að því að námið nýtist í daglegu lífi. Niðurstöðurnar geta ekki síður nýst starfsfólki í búsetuþjónustunni sem vinnur við að aðstoða fólk með þroskahömlun sem þarf mikinn stuðning. Þess vegna verður á fundinum boðið til umræðu um hvernig megi skipuleggja fræðslu fyrir starfsfólk í búsetuþjónustunni til þess að hún nýtist sem best.
- Almennar umræður, t.d. um hugmyndir að námskeiðum, tímasetningar og fleira.
Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest.
Með bestu kveðju,
Helga Gísladóttir
forstöðumaður