Opið fyrir umsóknir á haustönn 2020
22.05.2020
Nú er hægt að sækja um námskeið haustannar hér á heimasíðunni. Stutt er á hnappinn Námskeið og þar birtast námskeiðsflokkarnir. Í haust verða 84 námskeiðstitlar í boði og þar af eru 15 ný og spennandi námskeið. Fjórar námsbrautir verða í boði þar sem kennt verður 2-3 sinnum í viku.
Endilega kynnið ykkur vel það sem er í boði: https://www.fjolmennt.is/is/namskeid
Umsóknarfrestur er til 16. júní. Ekki er hægt að ábyrgjast námskeiðspláss ef sótt er um að þeim tíma loknum.