Óskað eftir listrænum stjórnanda
27.01.2020
Óskað er eftir listrænum stjórnanda listahátíðarinnar Listar án landamæra. Umsækjandi þarf að geta hafið störf í byrjun mars. List án landamæra er listahátíð sem leggur áherslu á list fatlaðs fólks og inngildandi listheim.
Helstu verkefni
-
Listræn stjórnun hátíðar og mótun dagskrár.
-
Umsjón með fjármögnun og fjármálum.
-
Umsjón með framkvæmd og skipulagi.
-
Kynningarmál.
-
Samskipti og aðstoð við listafólk.
-
Samtal og samstarf við aðra aðila í listheiminum.
Umsóknir sendist á netfangið: info@listin.is til og með 14. febrúar 2020 merkt Starfsumsókn. Frekari upplýsingar fást í síma 6918756, www.listin.is eða á info@listin.is