Prjóna námskeiðið fyrir byrjendur
25.09.2019
Prjóna námskeiðið fyrir byrjendur. Á námskeiðinu er kennt að prjóna garðaprjón og slétt prjón. Prjónaður er trefill, ennisband eða húfa. Prjónað er úr Álafosslopa og er garn innifalið í verði námskeiðs.
Verð: 7.800 krónur.
Kennt er í 3 skipti á miðvikudögum klukkan 16:15 til 18:15 dagana 6. nóvember, 13. nóvember og 27. nóvember.
Kennari er Ragnheiður Sjöfn Jóhannsdóttir.