Saumaklúbburinn
01.02.2018
Námskeiðið Saumaklúbburinn fer vel af stað þessa önnina. Á námskeiðinu eru sex nemendur. Þeir skiptast í tvo hópa og vinna til skiptis í matreiðslu og handverki. Í þriðja hverjum tíma er svo haldinn saumaklúbbur og þá eiga allir góða stund saman yfir veitingum sem hópurinn í matreiðslu er búinn að undirbúa. Fyrsti saumaklúbburinn var haldinn í vikunni. Þorrinn setti svip sinn á saumaklúbbinn að þessu sinni.
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja sameina einhvers konar handverk og góðan mat ásamt því að vera í góðum félagsskap, spjall og upplifa notalegt andrúmsloft.