Sumarnámskeið 2017

Dagana 9. - 13. júní næstkomandi verða haldin sumarnámskeið í Fjölmennt. Líkt og undanfarin ár verður fjölbreytt úrval námskeiða í boði. 

Alls verða fimmtán námskeiðstitlar í boði, öll námskeiðin eru aðeins eitt skipti. Hægt er að velja sér námskeið fyrir hádegi, eftir hádegi og jafnvel síðdegis.

Endilega skoðið vel hvaða námskeið eru í boði og tímasetningar hér.

Umsóknarfrestur er til 25. maí.

Athugið að einungis er hægt að sækja um eitt námskeið og eitt til vara.