Sumarnámskeið 2019
Sumarnámskeið Fjölmenntar hefjast 24. maí næstkomandi. Í boði verða mörg skemmtileg námskeið, ný og gömul í bland. Hægt er að sækja um núna. Sjá hnapp hægra megin á forsíðunni, þar getið þið séð öll námskeið sem í boði verða.
http://www.fjolmennt.is/is/sumarnamskeid
Öll námskeiðin eru 1 - 2 skipti.
Sem dæmi um ný námskeið má nefna Sumarsmell þar sem þátttakendur fá tækifæri til að búa til sinn eigin sumarsmell á spjaldtölvu. Í fyrri tímanum er samið lag og í seinni tímanum er búið til myndband við lagið með green screen- tækni. Boðið upp námskeið í samvinnu við Vísindasmiðju Háskóla Íslands og loks má nefna Smoothie námskeið þar sem þátttakendur búa til ólíka smoothie drykki sem eru ólíkir fyrir bragðlaukana og augað.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.