Sumarnámskeið að hefjast

Nú eru fyrstu sumarnámskeiðin að hefjast. Vegna fjölda umsókna á sum námskeið þurfti að bæta við námskeiðstímum og því hófst námskeiðið Boðið í Grill í gær. 

Námskeiðið tókst mjög vel og voru allir þátttakendur mjög ánægðir.

Grilluð var þriggja rétta máltíð. Í forrétt var mini pizza með hvítlauksolíu, mozzarellaost, tómat og basiliku.

Í aðalrétt var kjúklingaspjót, kartöflusalat og ferskt salat.

Í eftirrétt var grilluð súkkulaðikaka, borin fram með ís.