Sumarnámskeiðum lokið

Sumarnámskeiðum er lokið þetta árið. Í boði voru 14 námskeið og tóku tæplega 100 manns þátt í þeim. 

Námskeiðin voru sérlega vel heppnuð og voru þátttakendur mjög ánægðir með þau. Veðrið lék við okkur þessa vikuna og  var  ánægjulegt að geta boðið upp á fjölmörg námskeið utandyra. 

Við þökkum fyrir skemmtilegar stundir.