Tækni á hindrana
23.10.2024
Tækni án hindrana er fræðsluverkefni sem fjallar um tækni, mannréttindi og fatlað fólk og hvernig tæknin getur aukið aðgengi og þátttöku í samfélaginu. Verkefnið er unnið af Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur, doktorsnema við Háskóla Íslands og baráttukonu fyrir réttindum fatlaðs fólks. Verkefninu er ætlað að vekja athygli á mikilvægi aðgengis í stafrænu samfélagi. Fræðslan er aðgengileg á samfélagsmiðlum, sem og á heimasíðu Miðstöðvar um auðlesið mál.
Verkefnið er styrkt af ÖBÍ réttindasamtökum og unnið í samstarfi við Miðstöð um auðlesið mál. Myndir eru eftir Elías Rúna.