Það er opið í Fjölmennt
03.11.2020
Öll námskeið sem haldin eru í Vínlandsleið 14 eru opin. Þeir sem vilja geta því mætt á námskeiðin sín.
Eftirfarandi námskeið eru ekki haldin dagana 2. til 17. nóvember:
- Sund í Sundhöll Reykjavíkur
- Zumba dans í Styrk
- Jóga í Yogasmiðjunni
- Jóga í Ljósheimum
- Dans í Dansskólanum Hvönn
- Myndlist í Myndlistaskóla Kópavogs
Við hringjum í þátttakendur þessara námskeiða um leið og þau geta hafist að nýju.
Ég vil minna á að enginn komi á námskeið hjá Fjölmennt ef minnsti vafi leikur á að viðkomandi geti verið að veikjast.
Með bestu kveðju,
Helga Gísladóttir
forstöðumaður.