Umræðufundur fyrir stjórnendur, starfsfólk heimila og aðstandendur

Að nota spjaldtölvuna í daglegu lífi – hlutverk og ábyrgð
Að nota spjaldtölvuna í daglegu lífi – hlutverk og ábyrgð

Umræðufundur fyrir stjórnendur, starfsfólk heimila og aðstandendur: Að nota spjaldtölvuna í daglegu lífi – hlutverk og ábyrgð

 

Mánudaginn 24. september kl. 10:00-11:00 verður boðið upp á umræðufund í húsnæði Fjölmenntar, Vínlandsleið 14, um notkun spjaldtölvunnar í daglegu lífi og um hlutverk og ábyrgð mismunandi aðila.

Fundurinn er ætlaður stjórnendum og starfsfólki á heimilum sem og aðstandendum þeirra sem skráðir eru á spjaldtölvunámskeið á þessari önn. Einnig eru tenglar þátttakenda sem hafa áður verið á spjaldtölvunámskeiði velkomnir enda getur fundurinn nýst þeim sem vilja vinna að frekari eftirfylgd heima.

 

Á fundinum verða kynntar nokkrar leiðir til að auka notkun spjaldtölvunnar. Lögð verður áhersla á að fundargestir fái tækifæri til að miðla reynslu og heyra hvernig aðrir vinna með spjaldtölvuna við mismunandi aðstæður. Einnig verður kynnt fyrirkomulag ráðgjafar og fræðslu hjá verkefnastjóra í Fjölmennt.

 

Ath. ef óskað er eftir því og næg þátttaka næst þá verður einnig hægt að bjóða upp á fund eftir hádegi sama dag.

 

Áhugasamir eru beðnir að skrá sig með því að senda tölvupóst á helle@fjolmennt.is. Vinsamlegast tilgreinið hvaða þátttakanda (þátttakendum) þið tengist við skráningu.