Umræðufundur í Fjölmennt: Að nota spjaldtölvuna í daglegu lífi

Boðið verður upp á umræðufund um notkun spjaldtölvu í daglegu lífi. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Fjölmenntar, Vínlandsleið 14, mánudaginn 30. september kl: 10:00-11:00.
Athugið: ef óskað er eftir því og næg þátttaka næst þá verður einnig hægt að bjóða upp á fund eftir hádegi sama dag.

Fundurinn er sérstaklega ætlaður stjórnendum og starfsfólki í búsetuþjónustu þátttakenda sem skráðir eru á spjaldtölvunámskeið á þessari önn ásamt aðstandendum þeirra. Tenglar þátttakenda sem hafa áður verið á spjaldtölvunámskeiði sem og aðrir sem vilja vinna að frekari eftirfylgni heima eru einnig velkomnir.

Meginmarkmið fundarins er að efla samstarf um nám þátttakenda hjá Fjölmennt og stuðla að því að það nýtist sem best í daglegu lífi. Rætt verður um tilgang þess að vinna að notkun spjaldtölvu í daglegu lífi, hlutverk mismunandi aðila og hugmyndir að leiðum. Lögð verður áhersla á að fundargestir fái tækifæri til að miðla reynslu og heyra hvernig aðrir vinna með spjaldtölvuna við mismunandi aðstæður. Einnig verður kynnt fyrirkomulag ráðgjafar og fræðslu hjá verkefnastjóra í Fjölmennt.

Áhugasamir eru beðnir að skrá sig með því að senda tölvupóst á helle@fjolmennt.is. Vinsamlegast tilgreinið við skráningu hvaða þátttakanda/þátttakendum þið tengist.