Umsóknir fyrir vorönn 2017 og jólanámskeið

Umsóknarfrestur til að sækja um námskeið á vorönn 2017 er til 20. nóvember næstkomandi. Þau námskeið sem í boði verða eru komin á heimasíðuna undir hnappnum Námskeið.

Í desember verður boðið uppá stutt jólanámskeið, 1 - 2 skipti. Á heimasíðunni er hnappur á forsíðu sem heitir jólanámskeið og þar er hægt að velja um námskeið.

Athugið að sækja þarf um í tvennu lagi, annars vegar um námskeið á vorönn og hins vegar um jólanámskeið.