Uppskera - listahátíð er að hefjast
03.02.2025
8.febrúar hefst listahátíðin Uppskera. Hátíðin er menningarhátíð fötlunarfræða, samtaka fatlaðs fólks og fatlaðs listafólks.
Tilefni hátíðarinnar er 20 ára afmæli fötlunarfræða. Á dagskrá verða málþing, sýningar, smiðjur og samtöl víða um borgina þar sem listsköpun fatlaðs fólks verður í forgrunni. Viðburðir verða táknmálstúlkaðir og haldnir á aðgengilegum stöðum.
Við vekjum athygli á dagskrá hátíðarinnar en þar er margt áhugavert í boði
Hér er hægt að skoða dagskrá hátíðarinnar
Hátíðin er öllum opin að kostnaðarlausu.