Útskrift Heilsubrautar

Miðvikudaginn 4. maí var útskrift Heilsubrautar. Þetta var fjórði hópurinn sem er útskrifaður eftir tveggja anna nám. Í vetur voru sex þátttakendur sem luku námi. Helga Gísladóttir forstöðumaður útskrifaði hópinn með viðhöfn. Þátttakendur fengu afhent viðurkenningarskjöl ásamt efni frá vetrinum.