Vel heppnuð Vorhátíð Fjölmenntar

Tæplega 300 manns skemmtu sér vel á Vorhátíð Fjölmenntar.  Katla Margrét leikkona var veislustjóri og stjórnaði hún meðal annars söng og dróg út marga veglega happdrættisvinninga. Maturinn var mjög góður, en boðið var uppá tómatsúpu, kjúkling og ís í eftirrétt. Söngsveitin Plútó söng og spilaði og loks var diskótekið Dollý sem hélt uppi stuðinu.