Vorönnin hálfnuð

Nú er vorönnin um það bil hálfnuð. Styttri námskeið eru flest búin og ný hefjast í næstu viku. Vegna þessa er ekkert sund í Kópavoginum þessa vikuna. Kennarar eru í óðaönn að undirbúa næstu námskeið og munu hafa samband við þátttakendur sem eiga að byrja á námskeiðum á næstunni.