Einkaþjálfun

Markmið námskeiðsins er undirbúningur fyrir líkamsrækt á eigin vegum.

Kennt verður að æfa sjálfstætt á líkamsræktarstöð. Þátttakendur læra að bera ábyrgð á sinni líkamsþjálfun og er markmiðið að þeir geti æft án leiðsagnar kennara.  

Áhersla er lögð á æskilega vinnuröð, upphitun og teygjur, vinnu í tækjum og svo teygjur í lokin.

Einstaklingsmiðaðar æfingaáætlanir verða gerðar í upphafi auk þess sem þátttakendur fá í lokin áætlun um áframhald æfinga.

Markmiðið er að eftir lok námskeiðs þá geti þátttakendur æft sjálfstætt á líkamsræktarstöð.

  • Kennt er 1 klukkustund í senn.
  • Þátttakendur kaupa sér sjálfir kort á líkamsræktarstöðinni og greiða einnig  námskeiðsgjald til Fjölmenntar.

Umsóknarfrestur er til 16. júní. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Athugið:

Enginn stuðningsfulltrúi frá Fjölmennt er í World Class. Þeir sem þurfa aðstoð í klefa eða á biðtíma fyrir og eftir tímann þurfa að hafa aðstoð að heiman.

 

Staður: World Class, Egilshöll
Verð: 10.000-11.600
Tími: 8 vikur
Matthías Már