Förðun og umhirða húðar og hárs
Langar þig að læra förðun og hvernig best er að hugsa um húðina og hárið?
Að farða sig fallega styrkir sjálfsmyndina og eykur vellíðan. Á þessu námskeiði verða kennd réttu handtökin við förðun t.d. hvernig á að beita förðunarburstunum og nota augnskugga. Hvernig farði hentar hverri húðgerð og hvernig best sé að skyggja og setja ljóma á húðina.
Einnig verður farið vel yfir það hvernig best er að huga að umhirðu húðarinnar og hársins.
- Námskeiðið er 3 skipti.
- Dagsetningar: auglýst síðar.
- Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.
Athugið að enginn félagsliði er til aðstoðar í Framvegis og þau sem þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs þurfa að hafa aðstoðarmanneskju með sér. Að öðrum kosti getur viðkomandi ekki sótt þetta námskeið.