Lærðu að nýta tækin
Á námskeiðinu læra þátttakendur hvernig hægt er að nota tölvu / snjalltæki á fjölbreyttan hátt.
Áhersla er lögð á að tækin nýtist þátttakendum sem best.
Viðfangsefni eru tekin fyrir allt eftir áhuga þátttakenda hverju sinni og geta meðal annars verið:
- Að vinna með áhugamál í tölvu / snjalltækjum.
- Að kynnast nýjum möguleikum til að vinna með ljósmyndir og myndbönd.
- Að kynnast helstu möguleikum internetsins og samfélagsmiðla.
- Að kynnast ýmsum smáforritum, leikjum og þrautum.
Ekki er gerð krafa um að þátttakendur eigi tölvu / snjalltæki og getur námskeiðið því hentað þeim sem eru að velta fyrir sér að kaupa slíkt tæki.
Námskeiðið getur einnig hentað þeim sem hafa lengi átt tölvu / snjalltæki en langar að læra að nota það á fjölbreyttari hátt.
Vakin er athygli á að hægt er að sækja um fræðslu um notkun spjaldtölvu fyrir starfsfólk og aðstandendur þátttakenda á þessu námskeiði.
Námskeiðið er einu sinni í viku, 1-2 kennslustundir.
Umsóknarfrestur er til 20.nóvember.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.