Setti námskeið í körfu

Litir og tónar í skapandi samvinnu

Á námskeiðinu er unnið með upplifun á myndlist með hljóðum og snertingu.

Námskeiðið er byggt upp í kringum þemavinnu með liti og framandi tóna sem veita innblástur í skapandi samvinnu.

Leitast er við að skapa tækifæri fyrir tjáskipti og þátttöku á eigin forsendum. Áhersla er lögð á að finna leið til að hafa áhrif á það sem gerist hér og nú. Nýttar eru skapandi leiðir til þess að þátttakendur geti tekið þátt í að búa til listaverk eða átt hlutdeild í því sem hópurinn gerir.

Kennt er einu sinni í viku, 1,5 kennslustundir í senn.
Nánari tímasetning auglýst síðar.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Fjölmennt
Verð: 11.600-23.200
Tími: 8-16 vikur