Myndlist og jóga
Myndlist og jóga er gott par og á þessu námskeiði nálgumst við jóga og myndlist á skapandi og einstaklingsmiðaðan hátt.
Við byrjum hvern tíma á léttri jóga upphitun og mýkjum líkama og huga. Eftir það gerum við fjölbreytt skapandi verkefni í myndlist. Við prófum ólík efni og aðferðir, kynnum okkur verk annars listafólks og vinnum út frá hugmyndum þátttakenda.
Í lok tímana lærum við grunnatriði hugleiðslu og endum á góðri slökun.
Markmið námskeiðsins er að opna sýn þátttakenda á styrkleika sína, efla frumkvæði þeirra og tengja saman líkama, huga og hjarta á skapandi hátt.
Kennt er einu sinni í viku, 2 kennslustundir í senn.
- Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
- Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Umsóknarfrestur er til 20.nóvember.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.