Setti námskeið í körfu

Myndlist

Á námskeiðinu  er unnið  að ákveðnum verkefnum í bland við  frjálsa listsköpun. 

Þátttakendur fá kennslu í tækni og aðferðum og geta prófað ólíka liti og efni sem notað er í myndlist. Gerð verða bæði tvívíð og þrívíð listaverk.

Í upphafi námskeiðsins gera þátttakendur áætlun um nám sitt með aðstoð kennara.  Námskeiðið er því sniðið að hverju og einu og miðast viðfangsefni út frá vali þeirra á verkefnum.

Dæmi um verkefni eru: portrett og sjálfsmyndir, landslag, uppstilling, klippimyndir og skúlptúr.

Dæmi um efnivið eru: vatnslitir, málning, pappamassi,  teiknipennar.

Áhersla er lögð á að ýta undir sköpunargleði þátttakenda og virkja ímyndunarafl þeirra. Að auki verður  listfræðsla um verk listafólks í listasögunni.

Stefnt er að því að þátttakendur geti nýtt sér þekkingu sína sér til gagns og ánægju.

Kennt er einu sinni í viku, 1 -2 kennslustundir í senn.

Umsóknarfrestur er til 16. júní. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina. 

Staður: Fjölmennt
Verð: 14.200-15.800
Tími: 8 vikur