Setti námskeið í körfu

Söngur

Námskeið í söng - dægurtónlist og klassík.

Á námskeiðinu er unnið með eftirtalda þætti:

  • Líkamsstöðu, öndun, raddæfingar
  • Raddbeitingu, textaframburð, túlkun og framkomu.
  • Dægurlög, þjóðlög og sígilda tónlist eftir áhuga þátttakanda.
  • Söng með og án hljóðnema.
  • Hugtök og grunnþætti tónlistar 

Námskeiðið er kennt í einkakennslu en einnig er hægt að vera í litlum hópi.

Námskeiðið  er þjálfun í söngtækni og getur hentað þeim sem vilja undirbúa sig fyrir áframhaldandi tónlistarnám eða þátttöku í tónlistarstarfi. 

Námskeiðið er í 8 vikur, einu sinni í viku, 1-1,5 kennslustundir í senn.

Umsóknarfrestur er til 20.nóvember. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Fjölmennt
Verð: 10.000 - 23.200 kr fer eftir lengd námskeiðs
Tími: 8 - 16 vikur