Setti námskeið í körfu

Tónlistarstöðvar

Á námskeiðinu er unnið með tónlist á fjölbreyttan hátt og þátttakendur fá tækifæri til að finna sinn innri tónlistarmann. Unnið verður með söng, hljóðfæraleik og fræðslu með stöðvavinnu.

Þátttakendur fá meðal annars tækifæri til þess að:

  • Spila á hljóðfæri
  • Þjálfa söngrödd og söng í hljóðnema
  • Þjálfa taktskyn og vinna með rythma
  • Skapa sína eigin tónlist
  • Fræðast um tónlist og tónlistarmenn.

Unnið er með tónlist sem þátttakendur þekkja en einnig verður kynnt ný tónlist.

Kennt er einu sinni í viku, eina kennslustund í senn.

Vakin er athygli á því að hægt er að sækja um fræðslu um aðstoð við hljóðfæraleik fyrir starfsfólk og aðstandendur þátttakenda á þessu námskeiði.

Námskeiðið er einu sinni í viku, 2,5 kennslustundir í senn í 10 vikur.

Umsóknarfrestur er til 16. júní. 

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Fjölmennt
Verð:
Tími: 8 vikur