Setti námskeið í körfu

Vatnslitamálun

Á þessu námskeiði verður kennd grunntækni við vatnslitamálun.  Unnið verður með ólík verkefni sem öll hafa það markmið að æfa færni með vatnsliti og auka skilning á notkun þeirra.  Helstu viðfangsefni eru   að mála uppstillingu, landslag, hús, plöntur, grænmeti, ávexti og blóm. Á námskeiðinu æfum við litablöndun og að mála með vatnslitum bæði gegnsætt og þétt.

Námskeiðið er í 8. vikur, einu sinni í viku 2-2,5 kennslustundir í senn.

Umsóknarfrestur er til 16. júní. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Fjölmennt
Verð:
Tími: 8. vikur