Gjöf frá Sunnusjóði

Í gær afhentu fulltrúar Sunnusjóðs, þær Guðrún Stephensen formaður og Arndís Vilhjálmsdóttir gjaldkeri, rofabúnað sem nota á við tölvur, heimilistæki og spjaldtölvur. Búnaðurinn er ætlaður til kennslu fjölfatlaðra nemenda Fjölmenntar. Rofar eru notaðir til þess að hafa stjórn á umhverfinu auka valkosti og auðvelda þátttöku í lífi og starfi.
Lesa meira

Laus pláss á námskeið

Hjá Mími símenntun er laust pláss í málun og blönduð tækni. Einnig er laust pláss á prjónanámskeið.
Lesa meira

Fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Alþingi samþykkti í gær ályktun um að samningur um réttindi fatlaðs fólks skuli fullgiltur fyrir Íslands hönd. Samningurinn var undirritaður af hálfu Íslands fyrir meira en 9 árum síðan, þ.e. 30. mars 2007, og hafa langflest ríki í heiminum þegar fullgilt samninginn.
Lesa meira

Nám að loknum framhaldsskóla, hvað er í boði? Fræðslukvöld hjá Þroskahjálp

Fræðslukvöld hjá Þroskahjálp verður haldið miðvikudaginn 7. september klukkan 20:00-22:00. Yfirskrift fræðslunnar er: NÁM AÐ LOKNUM FRAMHALDSSKÓLA - HVAÐ ER Í BOÐI? Allir velkomnir - ekkert þátttökugjald - skráning á asta@throskahjalp.is
Lesa meira

Stoltgangan 2016

Stoltgangan fer fram í fyrsta sinn laugardaginn 3. september. Lagt verður af stað frá Austurvelli kl 11:30 og gengið að Norræna húsinu.
Lesa meira

Námskeið Geðrækt - Nokkur sæti laus á haustnámskeið 2016

Umsóknarfrestur rann út í gær, miðvikudaginn 31. ágúst. Enn eru nokkur sæti laus og hægt að sækja um til mánudagsins 5. september. Umsóknir um námskeið sem þegar eru fullsetin fara á biðlista.
Lesa meira

Námskeiðahald að hefjast

Námskeiðin á haustönn eru nú smátt og smátt að fara í gang.
Lesa meira

Undirbúningur haustannar

Starfsfólk Fjölmenntar er þessa daga að undirbúa sig fyrir komandi haustönn og er endurmenntun liður í því.
Lesa meira

Skrifstofa Fjölmenntar opin á ný

Skrifstofa Fjölmenntar hefur opnað á ný eftir sumarfrí.
Lesa meira

Sumarfrí

Skrifstofa Fjölmenntar lokar frá og með mánudeginum 27. júní vegna sumarleyfa. Skrifstofan opnar aftur þriðjudaginn 2. ágúst.
Lesa meira