Sumarnámskeið 2017

Dagana 9. - 13. júní næstkomandi verða haldin sumarnámskeið í Fjölmennt. Líkt og undanfarin ár verður fjölbreytt úrval námskeiða í boði.
Lesa meira

Vortónleikar Fjölmenntar

Vortónleikar Fjölmenntar verða haldnir fimmtudaginn 18. maí næstkomandi í Grafarvogskirkju. Tónleikarnir hefjast klukkan 18:00 - 20:00 (6-8). Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Lesa meira

Vel heppnuð Vorhátíð Fjölmenntar

Tæplega 250 manns skemmtu sér vel á vorhátíð Fjölmenntar. Sigga Eyrún veislustjóri náði upp góðri stemmningu og fylltist dansgólfið þegar hún tók ABBA syrpu.
Lesa meira

Páskafrí

Páskafrí hefst mánudaginn 10. apríl. Kennsla hefst á ný miðvikudaginn 19. apríl.
Lesa meira

Aðalfundur og leiðarþing 2017

Á laugardaginn, 8. apríl, verður stór dagur hjá Átaki, félags fólks með þroskahömlun. Fyrst verður Leiðarþing og svo í framhaldi aðalfundur félagsins. Allir velkomnir að skrá sig.
Lesa meira

Vorhátíð 2017

Föstudaginn 28. apríl næstkomandi verður vorhátíð Fjölmenntar haldin. Að vanda verður hátíðin haldin í Gullhömrun í Grafarholti. Boðið verður uppá þriggja rétta veislumáltíð, skemmtiatriði og diskótek. Aðgöngumiðinn gildir sem happdrættismiði. Verð 8000 krónur.
Lesa meira

Kristín kveður

Í dag á 67 ára afmælisdaginn sinn kveður Kristín Sjöfn Sigurðardóttir okkur hér í Fjölmennt eftir 21 ár í starfi. Við þökkum samstarfið og óskum henni alls hins besta í framtíðinni.
Lesa meira

Símenntun fyrir alla - B-inclusive adult education for all

Fjölmennt hefur lokið tveggja ára þróunarverkefni í samstarfi með fleiri Norrænum þjóðum. Leitað var eftir því hvernig hægt er að aðlaga aðstæður til að opna fötluðu fólki aðgengi að símenntun og almennri fullorðinsfræðslu og hverjar eru helstu hindranir eða forsendur til að vel takist til. Verkefnið er samstarfsverkefni fjármagnað með styrk frá Nordplus voksen.
Lesa meira

Fjölmennt - Geðrækt - Örnámskeið Tölvuleikir LAN 24. mars 2017

Við spilum tölvuleiki þar sem tölvurnar eru tengdar saman (LAN). Kenndir og spilaðir verða vinsælustu tölvuleikirnir. Tölvur verða á staðnum en einnig er hægt að koma með eigin tölvur. Umsóknir um námskeiðið sendist á tölvupóstfangið annafs@fjolmennt.is fyrir 22. mars.
Lesa meira

Vorönnin hálfnuð

Nú er vorönnin um það bil hálfnuð. Styttri námskeið eru flest búin og ný hefjast í næstu viku.
Lesa meira